All the leaves are brown

21.08.2007 14:36:55 / burgos

Mér finnst rigningin góð....lalalalalla.......

Er ekki frá því að það sé bara smá Burgos fílingur í mér í dag... allavega er alveg klárlega Burgos rigning á Íslandi í dag hehe;)

Ekki allt gott að frétta af ykkur öllum?

Kv, Þórey Gunnars.


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.08.2007 14:45:34 / burgos

tuborg útilegan

Góðan daginn allir saman, eru ekki allir í stuði.

Ég ætlaði bara að gera stutta könnun. Ég var að spá hve margir ætluðu í Tuborg útileguna næsta föstudag. Ég mæti allaveganna á staðinn, kem reyndar ekki fyrr en rétt fyrir 22:00, það er bikarúrslitaleikur í sunnlensku deildinni kl 19:30, og liðið mitt (þar sem ég er liðstjóri) er að spila.

Bara smá pæling.

Hasta luego

Bjarki


» 7 hafa sagt sína skoðun

31.07.2007 20:10:17 / burgos

Bara að kasta kveðju;o)

Ætlaði bara að kasta kveðju á ykkur þar sem ég mun halda á vit sólarinnar á Spáni early í fyrramálið:haha: (eins gott að ég fái þá sól í þetta skiptið!!)

En ég ætlaði líka að óska ykkur góðrar skemmtunar á þjóðhátíð, þið sem ætlið þangað, og ég vona að þið verðið ekkert geðveikt óheppin með veður! En miðað við það að ákveðinn hópur manna náði að skemmta sér þrátt fyrir aðstæður sem mynduðust eftir Pearl Jam tónleikana þá hef ég svo sem engar áhyggjur af því að þið getið ekki djammað feitt sama hvernig viðrar;)

Annars kem ég heim 15.ágúst og það væri nú gaman ef farið væri að halda þetta Burgos-reunion sem stóð alltaf til að halda, öh nema það sé búið að halda það og mér hafi ekki verið boðið:$ , en það væri þá bara gaman að halda annað þar sem mér væri boðið :lol:

Hafið það sem allra best krílin mín og takið fyrir mig smá trylling í eyjum;)

kv.Bjarney


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.07.2007 12:11:09 / burgos

REKSTRARHAGFRÆÐI

Hey þið ógissla töff;)

Nú er ég að byrja í rekstarhagfræði, nánar tiltekið í DAG8| Og mig vantar bókina.... langar að vita hvort það sé einhver Burgoslingur sem vill endilega selja mér sína... þ.e.a.s ef einhver á hana:haha:

Economics, Mankiw & Taylor 2006 - Thomson

Muchas gracias, Þórey GunnaS.


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.07.2007 22:58:20 / burgos

Afmeyjuð eða hvað....

Nei hellú allir saman....Qué tal ?

Viljiði trúa því að þetta er mín fyrsta blogg færsla....ég er formlega afmeyjuð :lol: ekki seinna vænna líka ef út í það er farið. Ég verð að viðurkenna það að ég var nú eiginlega bara búin að gleyma þessari síðu í smá...pínu...ponku stund eins og ég var dugleg að fylgjast með fyrstu dagana. En nú ætla ég að vera duglega að fylgjast með og skrifa...nú er sko ekki aftur snúið :) Það er líka ótrúlega gaman að heyra aðeins frá ykkur sem maður var límdur við í heilan mánuð og svo þurfti maður bara að fara að klippa á naflastrenginn eftir frábæran tíma..:( og svo tókst okkur bara að taka sólina með okkur til Íslands, hefur verið geggjað veður síðan við komum heim.....og bara rigning núna í Burgos hehehehe...suckers 8)

En annað mál....þetta maraþon sem þú, Bjarney ert að fara í.....þetta er spurning...hmmmm...ef ég verð ekki í útlöndum þá gæti ég hugsað mér að reyna....en eins og þú veist þá er ég engin íþróttamanneskja og verð seint held ég en ég myndi kannski reyna. Ef ekki þá heiti ég pottþétt á þig og legg mitt af mörkum þannig...okey

...annað varðandi þjóðhátíð eins og það hefði verið geðveikt gaman að fara þá er ég örugglega eins og áður kom fram að fara til útlanda.....Spánn eða Rhodos togar meira í mig en Eyjar...SORRY :S

En jæja ég ætla að láta þetta fyrsta blogg mitt nægja í bili....Hasta luego amigos :lol: Kv. Mæja


» 5 hafa sagt sína skoðun

16.07.2007 15:48:28 / burgos

Selfoss er staðurinn Love gúru er maðurinn o.s.frv

jæja litlu pjöllurnar mínar, ég er með smá áskorun á ykkur! Þannig er mál með vexti að ég ætla að hlaupa hálft maraþon í Reykjavíkurmaraþoninu þann 18.ágúst n.k. Ég og Hafrún vinkona mín ætlum að hlaupa til styrktar MND félaginu getið (séð hérna af hverju MND-félagið varð fyrir valinu) og þar sem ég býst ekki við að nema örsmá prósenta af ykkur haugunum svo mikið sem íhugi að taka þátt í þessu hlaupi þá var ég að spá í hvort það myndi ekki slá aðeins á samviskubitið yfir að vera að íhuga að taka jafnvel ekki þátt í hlaupinu, eða kannski að vera með, eða jafnvel ekki! (Það eru samt fullt af vegalengdum í boði sko, Eva ég held að þú sért t.d ennþá gjaldgeng í Latabæjarmaraþonið;) hey og ég verð ekki kát með komment sem snúa að aldri mínum, það er bannað að gera grín að gömlu fólki! En það má gera grín að minna gömlu fólki skiljiði!) en já, ég býst samt ekki við að mæta ykkur í hlaupadressinu, þó að ég yrði samt afskaplega glöð yfir að hitta ykkur sko. Vá er hægt að tala svona mikið?? Ég andaði ekki einu sinni á milli orða! Anyways, hér fyrir neðan er linkur þar sem hægt er að heita á ákveðna keppendur, leitið bara að nafni (ég er t.d Bjarney Bjarnadóttir (döh!), og svo er það Hafrún Kristjánsdóttir) við ætlum að hlaupa fyrir MND félagið, ég fer í 21 km og Hafrún í 10 km
Markmið okkar er að safna allavegna 50.000.- og munið að margt smátt gerir eitt stórt;)

Hérna er linkurinn:

 http://www.marathon.is/pages/aheit/

Þannig að með því að heita á mig (eða Hafrúnu) þá bæði eruði að styrkja gott málefni OG hjálpa mér að drullast í mark, gott að hafa smá pressu á sér!! Og ég hlusta ekki á væl um að vera fátækur námsmaður, þið djammið allavegna nógu mikið, getið gefið andvirði bjórs í þetta! :lol:

Og núna er ég hætt að einoka bloggið;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.07.2007 16:39:23 / burgos

Selfoss er

Buenos dias

Jæja, hafið þið ekki verið dugleg að hlusta á útvarpið undanfarið? Það er allaveganna eitt lag sem hefur mikið verið spilað undanfarið, sem ég tel persónulega vera sumarsmellin í ár (ég er kanski ekki allveg hlutlaus). Ég er að tala um nýja lagið með Sniglabandinu, "Selfoss er". Persónulega finnst mér þetta vera góð auglýsing fyrir staðinn, fínasti texti.

Fyrir þá sem ekki hafa heyrt lagið, þá er set ég hér inn link: http://dagskra.ruv.is/streaming/ras2/?file=4319486/2


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.07.2007 14:31:49 / burgos

Þjóðhátíð!

Hola guapos! Hverjir ætla að mæta á þjóðhátíð? Og aðallega hverjir ætla að crasha hjá mér eða í garðinum mínum? Gott að hafa einhverja hugmynd um fjöldann svo fólk neyðist ekki til að sofa ofan á hvoru öðru út af plássleysi :P Helgi, það er gúmmíbátur í bílskúrnum sem þú getur sofið ofan í, veit þú átt eftir að fíla það :P Sjáumst sem flest !! :D Hildur Eyjaálfur

» 8 hafa sagt sína skoðun

06.07.2007 23:25:24 / burgos

Hætt við...

Ég er hætt við að fara á Esjuna (ekki það að ég hafi búist við að einhver af ykkur kæmi með, þá var samt skemmtilegra að láta vita, og svo getið þið sem nenntuð ekki, hætt að hafa samviskubit yfir að hafa ekki nennt,af því að það er hvort sem er enginn að fara:))en já, ég hætti við af því að það eru svo miklir haugar í kringum mig að ég var farin að sjá fram á að labba ein! Fyrir utan að það væri fróðlegt að sjá hvar í andsk... ég myndi enda ein í fjallgöngu, þá er ég komin með hundleið á þessu fjalli! (ætlaði sko bara að fara þarna upp sem greiða við aðra)

En ef ef ykkur haugunum langar í skvass þá vantar mig alltaf einhverja til að spila við (Örvar þú varst t.d búinn að skora á mig;)) og nú er ég hætt að einoka bloggið;)

-B

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.07.2007 22:15:22 / burgos

bara að brjóta ísinn:o)

Ákvað að koma í veg fyrir að þetta yrði lélegasta bloggsíða sem gerð hefur verið! :lol: Ekki það að ég hafi eitthvað mikið að segja, eða reyndar hef ég fullt að segja eins og fyrri daginn, en kannski ekki svona blogglega séð:$ Nema ykkur langi til að heyra af hamstrinum mínum sem vildi fyrst eftir að ég kom heim ekki láta knúsa sig og hljóp alltaf í felur, en er núna farin að leyfa mér að knúsa sig? Nei ég hélt ekki:lol:  Ákvað samt að skella inn mynd af sæta loðhamstrinum mínum:haha:

 

En já, það var samt einn tilgangur með að ég blogga, ætlaði bara að bjóða ykkur haugunum að rifja upp hina eiturmögnuðu göngu til Santiago og koma með á Esjuna á laugardag kl.13 (mæting við Sporthúsið þá, gangan byrjar sem sagt aðeins síðar) Ég býst nú ekki við rífandi mætingu, en það voru einhverjir að tala um það úti að langa til að fara á Esjun so now is you chance;) og meirsegja með þaulvanri Esjugöngu manneskju, er búin að fara 5x á toppinn, þar af villtist ég þrisvar og fór einhverja skrýtna leið upp:S Eeeeen það þýðir að ég fer POTTÞÉTT rétta leið núna!! 8) Vá og ég sem hafði ekkert að segja, læt þetta nægja, en þið eruð velkomin alle sammen.

kv.Bjarney


» 5 hafa sagt sína skoðun

26.06.2007 18:05:39 / burgos

picture time

Jæja, þá er ég loksins búinn að láta spánarmyndirnar á netið. Ég lét nú ekki allveg allar myndirnar sem ég tók, vegna þess að þær voru svo hellvíti margar. Samt eru þarna alls 212 myndir úr ferðinni, vona að það sleppi.

myndirnar eru inni á myspace-inu www.myspace.com/bjarki85

 kv. Bjarki

p.s. Helgi, fyrst að þér langar svona svaka mikið til að sjá myndir af mér með strípur, þá skal ég gá hvort að ég finni einhverjar og láta þær síðan á myspace-ið


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.06.2007 14:38:23 / burgos

Fiesta

Hola a todos!

Næstkomandi laugardagskvöld, 30.júní, hyggst ég halda upp á árin mín 24 og að sjálfsögðu eru allir Burgoslingar velkomnir.

Staður og stund gefið upp munnlega :lol: Bjallið á mig eða náið mér á msn

 Hasta pronto! - Signý


» 8 hafa sagt sína skoðun

22.06.2007 13:14:02 / burgos

Skógar it is!

Jæja við ákváðum að hætta við að eltast við geimverur og eltast frekar við stráka svo skógar urðu fyrir valinu!!!

við viljum samt endilega fá burgos strákana, enda lang flottastir ;) 

be there or be kassi ;)

 kv. rut


» 4 hafa sagt sína skoðun

22.06.2007 00:28:58 / burgos

Útilega á Flúðir um helgina

Halló halló :)

Fréttir hafa borist af geimskipi sem á að lenda á Flúðum um helgina. Við vinkonurnar ætlum ekki að láta okkur vanta þangað ef ske kynni að huggulegir geimbúar skyldu lenda þar óvænt sérstaklega þar sem ekki er mikið um úrval myndarlegs karlpenings í hreppunum.

Ef fleiri hafa áhuga á að æsast yfir þessum ósköpum þá er þeim meira en velkomið að koma og eyða með okkur nótt eða jafnvel tveimur um helgina:) 

Með von um að sjá ykkur flest:)

Svana


» 6 hafa sagt sína skoðun

22.06.2007 00:13:35 / burgos

Flúðir :)

hehe ég mæti,,, heheheh aðeins á undan

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
RSS tengill